|
VORSABÆR 1 |
|
Um okkurEigendur hestahótelsins að Vorsabæ 1 eru hjónin
Unnur Lísa Schram og Eiríkur Þórkelsson. Eiríkur er búfræðingur frá Noregi og líffræðingur BSc. frá Háskóla Íslands. Hann hefur m.a. starfað við fóðurrannsóknir hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Unnur Lísa er menntaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla MK og hefur m.a. verið leiðsögumaður í hestaferðum um Suðurland á vegum Land og hesta ehf. Unnur Lísa og Eiríkur hafa bæði mikla reynslu af umhirðu húsdýra auk reynslu af tamningu hesta. Þau hafa rekið búið á jörðinni Vorsabæ 1 síðan 1986. Eiríkur og Unnur Lísa eiga fjögur börn - þau Jakob ( f. 1993), Baldvin Ara ( f. 1996) og tvíburana Fríðu Rún og Svönu Hlín ( f. 2006). |
Vafraðu umFarsími: 8637121Tölvupóstfang: hestahotel@vorsabaer.is |